Harpa Dís Haraldsdóttir

Heimur Hörpu Skörpu

14.05.2008 16:44:37 / harpa

mótmæli.... bensínverð!

Á morgun fimmtudag eru mótmæli á austurvelli kl 10.30.

Mótmælum bensínverði...ALLIR að mæta!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 14:18:57 / harpa

Helv... Löggur!!!!!

Vá hvað ég er brjáluð út í löggur núna það sem er búið að vera í fréttum... eg ætlaði bara ekki að trúa a þær létu svona!!!!! Þvílík grimmd!!!!!:frown:

og þessar aðgerðir eru ekki til að þagga niðri í fólki.... ég held að nú sé fólkið enn brjálaðra......:evil::evil:

Ég styð vörubílstjóra allveg með heilum hug......:)

Loksins gera Íslendingar almenninleg mótmæli..... hættum að láta valta yfir okkur!!!:!::!::!:

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 14:40:27 / harpa

veik

Ósköp er leiðinlegt að vera veikur......:cry:

Jebb þið heyrðuð rétt... ég er VEIK, sem er fúlt. Veiktist í gær... með hita, kvef og alles....svo núna hef ég nákvæmlega ekkert að gera..... nenni ekki að horfa á dvd safnið mitt og Jóa því það er svo stutt síðan að ég horfði á þetta allt saman..... þannig að eina sem ég get gert er að lesa, lita, borða og sofa..... skemmtilegt.:evil:

Annars er ekkert merkilegt að frétta svo sem..... ætlaði bara að láta vita að ég er á lífi...

kv. Harpa veika:s

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 12:52:11 / harpa

köben

Jæja erum líka bún að panta ferð til köben...... förum út 3 apríl og komum heim 6 apríl... þetta verður eiginlega verslunarferð:)

og svo get ég líka hlakkað til tenerife í sumar:)

en þetta verður bara gaman...

kv. Harpa


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 22:29:35 / harpa

hellú

Jæja nú líður að því að hún Jóhanna mín er að fara út í 2 heila mánuði.... snökt....... en vonandi verða þeir fljótir að líða:).

En jæja annars er ekkert svo sem nýtt að frétta jú nema að Anna G. frænka var að eignast litla dúllu:) svo kellan er orðin 2ja barna móðir tvítug.... dugleg!

Jæja ég kveð að sinni........

ps. ég á besta kærasta í öllum heiminum;)... bara að deila því:)

kv. Harpa ástfangna


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 14:01:59 / harpa

Útlönd

jei.... vorum að panta ferð út í sumar til tenerife:)

Svo nú er bara að fara að telja niður:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 22:26:20 / harpa

reyna að blogga e-h:)

Jæja núna ætla ég mér að reyna að blogga.....

Jólin hjá mér voru bara frábær... reyndar fór Jói norður á þorláksmessu norður en kom aftur 27 des:)

Ég fékk í jólagjöf

Frá Jóa- cintamani vesti og 66° norður húfu í stíl við vettlinga sem ég á...

Mömmu og Pabba- adidas peysu rennda með hettu með gull röndunum og 10 þús gjafabréf í kringlunni

Haraldi- Greys anatomy seríu no 1

Dagmar- tösku úr fris company

Marinó- glös sem ég safna

Afa Eið- kökudisk

Erni afa- dvd tónlistardisk

Frá tengdapabba fengum við nýja teflon pönnu

Tengdamömmu- ný sængurverasett og leirskál og 2 leirkertastjaka í stíl

Ömmu og afa Jóa- ítalskir réttir Hagkaupa

og frá hinu gamla settinu- e-h stell úr .. æj man ekki hverju allavega glös og skálar

jamm svo þetta var það sem ég/við fengum og er ég allveg rosalega ánægð:)

 

Allavega þá tók ég smá djamm með Jóhönnu annan í jólum......fínt;)

Svo var auðvitað fengið sér í glas um áramótin... samt finnst mér aldrei gaman að djamma á áramótunum... var heima hjá mömmu og pabba ég og Jói. Fórum svo heim til okkar að ganga 01.30 og kom e-h af fólki þanngað. Kíktum svo í annað  (hóst) "partý" og kom ekki heim fyrr en að ganga 8 um morguninn.!!!!!!

Strengdi ég áramóta-heit... já á maður ekki að gera það......... svo mitt er að borða meira af ávöxtum þar sem ég borða þá nánast ALDREI..... finnst það leiðinlegt og mikið vesen..... en ætla að gera tilraun....;) Er miklu meira í mjólkurvörum.....!!!!

jámm..... held að þetta sé gott í bili....

kv. Harpa

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 08:46:26 / harpa

X-mas

Gleðileg Jól

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 20:00:07 / harpa

vá er ég veik???!!!

hæ.... jæja kom heim úr vinnunni um daginn og vitiði hvað.... Jói var aftur svo sætur..... beið mín bara pakki...:) sem sagt fékk desperate houswifes 3 seríu... akkurat sem mig langaði í:)

Annars var það akureyri um helgina... drakk óvart báða daganna....... hehe og á lau... shit ...drakk heilan fleyg af vodka enda var ég ógeðslega full.... annars bara mjög gaman... fórum í leikhús á sun á óvitana... mjög skemmtilegt:).

Flugferðin heim var hræðileg misstum afl í öðrum hreyflinum og þvílíka ókyrrðin.... hélt að þetta væri mitt síðasta........!!!!!

En takk þið öll fyrir norðan... og gaman að sjá ykkur:)

Harpa flughrædda....


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 13:20:24 / harpa

styttist

jæja það styttist í akureyri:)......

en verð að deila með ykkur hvað Jói er mikið æði... í gær þegar ég kom úr vinnu þá var hann búinn að kveikja á fullt af kertum og búinn að láta renna í heitt bað handa mér..... svo eftir baðið fékk ég baknudd;):D Algjört æði:)

svo er maður liggur við þétt bókaður í vikunni... ætla í neglur á morgun... litun og plokkun á föstud... og á lau er það klipping og svona..... algjör lúxus;)

Jæja bið að heilsa að sinni

Hilsen

Harpa dekurrófa


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 20:07:39 / harpa

ég veit...

Ég veit að ég er ekki góður bloggari núna.... ætla samt að reyna að bæta úr þessu..... svo sem ekkert rosalega mikið búið að gerast þannig séð... fyrir utan nokkur djömm:)

Allavega þá komum við norður helgina 9-11 nóv:)

Kv. Harpa letihaugur


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 13:23:14 / harpa

Afmæli

Hún mamma á afmæli í dag:* til hamingju

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 19:18:48 / harpa

spenna og myspace

Ætla bara að láta vita að ég er líka komin með myspace síðu:)

www.myspace.com/harpa85

Annars eru aðeins 6 dagar í portúgal;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 19:12:09 / harpa

Bloggleti

Þvílíkt bloggleti sem er búið að standa yfir í allt sumar hjá mér.... vonandi fer það batnandi fyrir aðdáendur mína;).

En já svo sem ekkert brjálað búið að gerast...

þar síðustu helgi fór ég aðeins á skrallið með Ástu... helvíti fínt, fór samt snemma heim vegna mikillar ölvunar hehe;)

Núna um helgina þá fór ég og Jói á kaupþingstónleikana þeir voru allveg svaka flottir, svo á lau fór maður aðeins niður í bæ og tékkað á flugeldasýningunni.... shit hvað það voru margir niðri í bæ.....fór með Jóa, pabba, begga og Tótu, mjög fínt... ég samt edrú og var smá pirruð... ég bara get ekki verið edrú í kringum alltof fullt fólk:lol:

Er samt búin að vera e-h smá slöpp yfir helgina... ekki nógu gott... víst e-h skítur að ganga:(.

En styttist í portúgal aðeins 15 dagar... get ekki beðið:)

Ásta kom í gær aðeins til mín í sunnudagsísinn;)

Já þá er það komið. Bið að heilsa að sinni

Harpa spennta


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 12:35:56 / harpa

Ekki allveg að virka!!!

Jæja ég held að það sé kominn tími á eitt stykki blogg;) Margt og mikið búið að gerast og ég ætla ekki að fara að rifja allt upp, bara það helsta. Byrjum á aðaldæminu...

ég varð 22 ára þann 27 maí:)

Brúðkaup hjá mömmu Jóa 26 maí:).

 Systir Jóa trúlofaði sig !!! ;) til hamingju með það;)

Ásdís og Jón Helgi trúlofuðu sig líka til hamingju með það líka... svo nú bíð ég bara hehe;) (Jói svitnar).

Jói átti afmæli varð 23 ára þessi elska:*

Skelltum okkur á Toto tónleikana... voru allt í lagi

Fór í brúðkaup hjá frænda mínum

í gær fór ég ásamt fríðum hópi vina út að borða og í keilu þar sem ég vann með látum hehe ....NOT held að ég hafi náð 63 stigum....:/ svo hver vill fara að æfa keilu með mér hehe???

Annars ekkert annað merkilegt... allavega man þá ekki eftir því

TATA

Harpa


» 21 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Heimsóknir
Í dag:  16  Alls: 53938
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012